Lifi byltingin!

Ég er andlegur pervert og pólitískur runkari. Á morgun er 1. maí og ætla ég með soninn og  tengdó í kröfugöngu. Fékk smá rebel tilfinningu í vinnuni um daginn þegar við sáum að við vorum öll sett á vaktir á sumardaginn fyrsta og 1. maí. Ómar, sem sér um afþreyinguna í BT-Skeifunni, hringdi í VR og fékk þær upplýsingar að þessir dagar væru "rauðir dagar" eða lögbundnir frídagar. Var þá farið í það að senda póst á alla starfsmenn til að láta vita að enginn væri skildugur til að vinna og ef við mindum ákveða að vinna ættum við rétt á hátíðar taxta. Málið var ekki að við vildum ekki vinna heldur það að vera ekki spurður og þar af leiðir meira prinsip mál heldur en annað. Þessi gamli góði fuck the system fílingur=P Þetta er nátturulega allt svo mótsagnarkent, að vera að vinna sem sölumaður í kapítalísku umhverfi þar sem framlegð og gróði skipta miklu máli og vera svo að tuða um rétt starfsmanna og frídag verkamanna. En fyrir mér er þetta hjartans mál og ég finn að þegar nær dregur kostningum hvað þetta verður meira spennandi. Ég hef meira að segja verið að hugsa alvarlega í að gerast flokksbundinn. Og hverjum þá? Jú Samfylkingunni. Það er sá flokkur sem heillar mig mest þessa dagana. Það sem mér langar að kjósa um í ár er velferð frekar en gróða, fjölskyldan frekar en fyrirtækin. Með þessu áframhaldi er ég hræddur um að núverandi ríkisstjórn einkavæði heilbrigðiskerfið, þeir væru örugglega búnir að því ef menn sæju peníng í því einsog með Símann og bankana. Í stjórnar tíð sjálfstæðisflokksins hefur ójöfnuður vaxið, því meiri peníng sem fólk þénar því minna borgar það til þjóðfélagsins!

Jæja var að horfa á "Art school confidential" sem btw er algjör snilld. Meðmæli dagsins, ekki spurning.

 


Public space

Ligg hér í sófanum heima í kópavoginum horfi á stjórnmálamenn rífast í kastljósi, hlusta á uppáhalds eurovision lagið mitt og vafra um netið. Helgin fór í það að spila nýjan tölvuleik á meðan konan fór með tengdamömmu á útskriftartónleika hjá Matthildi Önnu. Og fyrir áhugasama var ég að spila LOTRO eða Lord of the rings online sem er nýr MMORPG=P Laugardagurinn fór í eitthvað hangs, smá bæjar rölt með family á kaffihús þar sem við héldum upp á það að vera búin að selja íbúðina á Akureyri. Svo kom tengdó um kvöldð og passaði á meðan við fórum á tónleika á Nasa. Þar sló Samfylkingin upp balli undi yfirskiftinni "Rokkað gegn biðlistum". Mjög gaman þó það hafi ekki verið brjáluð mæting. Skemmtilegast þótti mér þó að uppgöfga Sprengihöllina. Hressir strákar í anda Bell and sebastian. Sunnudagur fór svo í meira hangs og ég og Gunni, nýji meðleigjandi okkar Ingu, fórum í Rúmfatalagerinn með Guðna Liljari. Um kvöldið fór ég svo í bíó með strákum úr vinnuni, sem var algjör snilld. Sáum The Pathfinder þar sem íslenskir víkingar koma mikið við sögu. Það eitt að aumingja leikararnir skuli hafa reynt að tala íslensku var hverrar krónu virði! 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband